Gleðilega hátíð

Lesa meira

Skráning hafin á Hönnunarmars 2017

Ert þú með hugmynd að sýningu eða viðburð fyrir HönnunarMars? Opnað hefur verið fyrir umsóknir um þátttöku á heimasíðu hátíðarinnar! Undirbúningur fyrir hátíðina er í fullum gangi en hún fer fram í níunda sinn dagana 23. – 26. mars 2017. Frestur til að skrá viðburði rennur út á miðnætti 17.janúar.
Lesa meira

Opið fyrir umsóknir í hraðalsverkefni fyrir tæknisprota

Framúrskarandi íslenskum tæknisprotum býðst nú í annað sinn frábært tækifæri til að senda tvo starfsmenn í öflugt hraðalsverkefni í Silicon Valley í fjórar vikur í mars 2017. Þetta er einstakt tækifæri til að sannreyna viðskiptamódelið og möguleika vörunnar á alþjóðlegum markaði, með minni áhættu, á styttri tíma og með minni tilkostnaði. Fyrirtækin sem verða valin þurfa að standa undir kostnaði við ferðir og uppihald tveggja starfsmanna í fjórar vikur í Bandaríkjunum, en fá jafnframt myndarlegan styrk. Styrkurinn stendur undir sjálfu námskeiðsgjaldinu, sem er umtalsvert fyrir hvern þátttakanda. Nánari upplýsingar á ensku um þennan einstaka hraðal: http://www.nordicinnovationhouse.com/tinc
Lesa meira

Náðu lengra með Tækniþróunarsjóði

Tækniþróunarsjóður hefur opnað fyrir umsóknir í styrktarflokknum Hagnýt rannsóknarverkefni.
Lesa meira

Námskeið í svæðisleiðsögn

Skráning stendur nú yfir í nám í svæðisleiðsögn fyrir Norðurlad vestra. Allar nánari upplýsingar hjá Farskólanum.
Lesa meira

Startup Tourism - Kynningarfundur á netinu

Startup Tourism er tíu vikna viðskiptahraðall þar sem allt að tíu sérvalin sprotafyrirtæki í ferðaþjónustu fá tækifæri til að þróa áfram viðskiptahugmyndir sínar undir leiðsögn reyndra frumkvöðla, fjárfesta og annarra sérfræðinga þeim að kostnaðarlausu.
Lesa meira

Svæðisleiðsögn - kynningarfundur

Kynningarfundur um nám í svæðisleiðsögn miðvikudaginn 23. nóvember á Hvammstanga, Blönduósi og Sauðárkróki
Lesa meira

Ferðamáladagur Norðurlands vestra heppnaðist vel

Ferðamáladagur Norðurlands vestra fór fram þann 9. Nóvember s.l. í Húnaveri og sóttu hann um 30 manns.
Lesa meira

VINNUSTOFU FRESTAÐ TIL MÁNUDAGS

Vegna slæmrar veðurspár er vinnustofu starfsmanna SSNV, sem átti að vera á Hvammstanga á morgun, fimmtudag, frestað. Vinnustofan verður mánudaginn 21. nóvember, kl. 15-18, á skrifstofu SSNV á Hvammstanga. Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra.
Lesa meira

Málþing um söfn og ferðaþjónustu

Safnaráð, Íslandsstofa og Samband íslenskra sveitarfélaga standa að málþingi um söfn og ferðaþjónustu þar sem rætt verður um hlutverk og stöðu safna og tengdrar starfsemi í íslenskri ferðaþjónustu. Málþingið er styrkt af Þjóðminjasafni Íslands.
Lesa meira