Hér má nálgast fundargerðina á pdf formi
Fimmtudaginn 20. október kom stjórn SSNV saman til fundar á Sauðárkróki og hófst fundurinn kl. 18:00.
Mætt til fundar: Adolf H. Berndsen, Unnur Valborg Hilmarsdóttir, Valgarður Hilmarsson, Sigríður Svavarsdóttir, Stefán Vagn Stefánsson og Björn Líndal Traustason framkvæmdstjóri sem ritaði fundargerð. Adolf H. Berndsen formaður setti fundinn og stjórnaði honum.
1. Fundargerð 9. stjórnarfundar SSNV dags. 6. september 2016
Fundargerðin samþykkt.
2. 24. ársþing SSNV
Farið yfir framkvæmd þingsins.
3. Formaður kjörnefndar
Þórdís Friðbjörnsdóttir kjörin formaður kjörnefndar SSNV .
4. Almenningssamgöngur afkoma
Farið yfir afkomu leiðar 57 fyrstu 9 mánuði ársins. Um er að ræða samstarfsverkefni SSV, FV og SSNV. Afkoman er jákvæð það sem af er ári og líkur til þess að verkefnið verði rekið með svolitlum afgangi á árinu 2016.
5. Uppgjör SSNV fyrstu 8 mánuði ársins
Framkvæmdastjóri lagði fram yfirlit úr bókhaldi samtakanna. Rekstur almennt í samræmi við áætlanir en ljóst að launahækkanir síðustu mánaða munu fara framúr áætlun.
6. Ráðstefna haust 2016
Framkvæmdastjóri og formaður leggja til að SSNV gangist fyrir ráðstefnu um ýmis mál er varða sveitarfélögin í landshlutanum. Um er að ræða mál eins og svæðisskipulag, Sviðsmyndagreiningu um búsetuþróun á Íslandi til ársins 2030, Samgönguáætlun fyrir landshlutann og möguleika á orkuöflun í landshlutanum.
Framkvæmdastjóra falið að undirbúa ráðstefnu og leggja til dagsetningu fundarstað og fundarefni.
7. Verklags- og úthlutunarreglur Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra
Reglurnar lagðar fram til staðfestingar en fundargerð til kynningar.
Stjórn staðfestir verklags- og úthlutunarreglur Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra.
8. Verklags- og úthlutunarreglur Nýsköpunarsjóðs Norðurlands vestra
Stjórn staðfestir verklags- og úthlutunarreglur Nýsköpunarsjóðs Norðurlands vestra.
9. Gjaldskrá almenningssamgangna
Lögð fram tillaga Strætó að breytingu á gjaldskrá almenningssamgangna. Um er að ræða þrjár tillögur sem allar miða að hækkun gjaldskrár. Stjórn frestar afgreiðslu málsins.
10. Áhersluverkefni 2016
Áhersluverkefnin hafa verið samþykkt af stýrihópi stjórnarráðsins. Stjórn samþykkti verkefnin á fundi þann 10. maí sl. Lagt fram til kynningar.
Verkefnin eru:
Svæðisleiðsögn, námskeið í samstarfi við Farskóla Norðurlands vestra
Kortlagning skapandi greina
Aukið samstarf listamanna/listamiðstöðva og fræðslustofnana á Norðurlandi vestra
Listaskóli unga fólksins
Raunvísindaskólinn
Íbúakönnun á Norðurlandi vestra
11. Fundargerðir
Eftirtaldar fundargerðir lagðar fram til kynningar:
Fundargerð haustfundar landshlutasamtaka dags. 21. sept. 2016
Fundargerð stjórnar Eyþings dags. 07. september 2016
Fundargerð stjórnar Eyþings dags. 22. september 2016
Fundargerð stjórnar SSA nr. 11 dags. 20. september 2016
Fundargerð stjórnar SSA nr. 12 dags. 06. október 2016
Fundargerð stjórnar SSA nr. 01 dags. 08. október 2016
Fundargerð stjórnar SASS nr. 511 dags. 02. september 2016
Fundargerð stjórnar SASS nr. 512 dags. 30. september 2016
Fundargerð stjórnar SSH nr. 433 dags 05. september 2016
Fundargerð stjórnar SSS nr. 706 dags 14. september 2016
Fundargerð stjórnar SSS nr. 707 dags 05. október 2016
Fundargerð stjórnar SSV nr. 125 dags. 24. ágúst 2016
Fundargerð stjórnar SSV nr. 126 dags. 04. október 2016
Fundargerð stjórnar FV dags 09. ágúst 2016
Fundargerð stjórnar FV dags 29. ágúst 2016
12. Skýrsla framkvæmdastjóra
Flutt munnlega á fundinum.
13. Önnur mál
Engin mál komu fram undir þessum lið
Fleira ekki tekið fyrir. Fundi slitið kl. 20:00.
Adolf H. Berndsen (sign.)
Unnur Valborg Hilmarsdóttir (sign.)
Valgarður Hilmarsson (sign.)
Sigríður Svavarsdóttir (sign.)
Stefán Vagn Stefánsson (sign.)
Björn Líndal Traustason (sign.)