Hér er hægt að nálgast fundargerðina sem pdf
Þriðjudaginn 17. janúar kom stjórn SSNV saman til fundar á Sauðárkróki og hófst fundurinn kl. 09:30.
Mætt til fundar: Adolf H. Berndsen, Sigríður Svavarsdóttir, Stefán Vagn Stefánsson, Unnur Valborg Hilmarsdóttir og Björn Líndal Traustason framkvæmdstjóri sem ritaði fundargerð. Stefán Vagn Stefánsson formaður stjórnar setti fundinn og stjórnaði honum.
1. Fundargerð 12. stjórnarfundar SSNV dags. 6. desember 2016.
Fundargerðin samþykkt.
2. Uppgjör SFNV og Róta bs.
Stjórn samþykkti með tölvupósti í lok árs uppgjör milli SFNV og Róta. Uppgjörið var í samræmi við samþykktir ársþings 2013 og 2014 en til grundvallar þeim samþykktum lá fyrir samantekt Kristjáns Jónassonar endurskoðanda á því hvernig uppgjörið skildi fara fram. Uppgjör fór fram 30. desember 2016.
Stjórn staðfestir uppgjör SFNV og Róta.
3. Samningur við Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti
Samningur við Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið vegna iðnaðaruppbyggingar við Hafurstaði var undirritaður þann 16. des 2016. Undirritað eintak liggur fyrir fundinum.
Stjórn staðfestir samninginn
4. Niðurstöður íbúakönnunar á Norðurlandi vestra.
Helstu niðurstöður lagðar fram til kynningar.
5. Starfsáætlun SSNV 2017.
Unnin hefur verið starfsáætlun fyrir SSNV vegna ársins 2017. Starfsáætlunin hefur m.a. að geyma dagsetningar stjórnarfunda, ársþings og haustþings.
Stjórn staðfestir starfsáætlunina.
6. Áhersluverkefni 2017.
Framkvæmdastjóri leggur til að ráðist verði í 4 verkefni:
Stjórn samþykkir ofangreind verkefni.
7. Fundur EES og EFTA sveitarstjórnarvettvangs
Gögn lögð fram til kynningar.
8. Um Árósasamninginn
Gögn lögð fram til kynningar.
9. Fundargerðir.
Lögð fram til kynningar
30. fundargerð stýrihóps Stjórnarráðsins.
Lögð fram til samþykktar
Fundargerð úthlutunarnefndar Uppbyggingarsjóðs dags. 9. des. 2016.
Fundargerð úthlutunarnefndar samþykkt
10. Skýrsla framkvæmdastjóra.
Flutt munnlega á fundinum.
11. Önnur mál.
a) Starfsmannamál
Framkvæmdastjóra veitt heimild til að framlengja tímabundinn ráðningarsamning starfsmanns í eitt ár.
b) Fundargögn
Á 24. ársþingi SSNV var því beint til stjórnar að fundargögn skildu send sveitarstjórnum og framkvæmdastjórum sveitarfélaga. Framkvæmdastjóri hefur sent gögn eftir fundi ásamt fundargerð. Stjórn beindi því til framkvæmdastjóra senda fundargögnin til ofangreindra aðila um leið og þau eru send á stjórnarmenn.
Fleira ekki tekið fyrir. Fundi slitið kl. 11:30
Stefán Vagn Stefánsson (sign.)
Adolf H. Berndsen (sign.)
Sigríður Svavarsdóttir (sign.)
Unnur Valborg Hilmarsdóttir (sign.)
Björn Líndal Traustason (sign.)