Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) leitar eftir næringarfræðingi í 50% starfshlutfall. Viðkomandi mun starfa þvert á stofnun og því er hægt að sinna starfinu frá öllum megin starfsstöðvum HSN.
Næringarfræðingur HSN ber faglega ábyrgð og stuðlar að faglegri þróun og gæðum á sínu starfssviði. Hlutverk næringarfræðings er að veita faglega næringarráðgjöf til skjólstæðinga ásamt fræðslu og ráðgjöf til starfsfólks.
Helstu verkefni og ábyrgð
Heilsueflandi móttökur
Næringarráðgjöf
Ráðgjöf og stuðningur í geðheilsuteymi barna
Ráðgjöf vegna matseðla og til starfsfólks í faghópi eldhúsa
Gerð og nýting fræðsluefnis
Önnur verkefni á sviði næringarráðgjafa
Hæfniskröfur
MS gráða í klínískri næringarfræði
Reynsla í faginu er kostur
Farmúrskarandi samskiptahæfni, jákvæðni og lausnarmiðun
Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt
Reynsla af fjarmeðferðum er kostur
Góð tölvukunnátta
Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
Faglegur metnaður í starfi og rík árangursþörf
Ökuleyfi, hreint sakavottorð og gott orðspor
Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf á íslensku þar sem umsækjandi rökstyður hæfni sína út frá hæfniskröfum auglýsingar
Nánari upplýsingar um starfið má finna hér.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550