SSNV býður upp á spennandi viðburð þar sem tækifærin sem felast í myrkrinu fyrir ferðaþjónustu verða könnuð. Viðburðurinn fer fram í Kvennaskólanum á Blönduósi, miðvikudaginn 19. febrúar kl. 16:30!
Myrkrið og möguleikarnir eru hluti af evrópuverkefninu GLOW 2.0 og er ætlað þeim sem vilja taka næstu skref í að nýta myrkurgæði á sjálfbæran og skapandi hátt.
Hvað bíður þín?
- Fræðsla fyrir þá sem vilja þróa ferðaþjónustu tengda myrkrinu
GESTAERINDI: Olli Reijonen frá Syrjävaara Good Night (Finnland), sem síðustu ár hefur verið að byggja upp myrkurferðaþjónustu í Karelíuhéraði í Austur-Finnlandi
- Umræður um mikilvægi myrkurgæða og hvernig þau geta skapað einstaka upplifun
- Tækifæri til að tengjast öðrum í greininni og fá innblástur
Þetta er viðburður sem þú vilt ekki missa af! Skráning fer fram hér: https://forms.gle/iEZGDAJt7YQZu36v7
Vertu með og sjáðu hvernig myrkrið getur orðið dýrmæt auðlind í ferðaþjónustu!
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550