Íbúakönnun landshlutanna 2023 - afstaða innflytjenda

Í dag kom út Íbúakönnun landshlutanna 2023 – afstaða innflytjenda. Í þeirri skýrslu er dregin fram afstaða innflytjenda í nýlokinni íbúakönnun og hún borin saman við afstöðu Íslendinga. Einnig var hún borin saman við afstöðu innflytjenda árið 2020 þegar síðasta könnun var framkvæmd.

Að mati innflytjenda jókst atvinnuöryggi á milli kannana en samt versnuðu fleiri þættir er tengjast búsetuskilyrðum þeirra en þeir sem löguðust

Atvinnuöryggi jókst á milli kannana gagnvart innflytjendum en annars versnuðu fleiri þættir er tengjast búsetuskilyrðum en þeir sem löguðust á milli kannana. Mest munar um fasteignamarkaðinn (íbúðir til sölu og leigu) auk almenningssamgangna, heilsugæslu, afþreyingu og sorpmála. Athygli vekur að innflytjendur stóðu mun ver á fasteignamarkaði en Íslendingar jafnvel þó Íslendingar teldu enga aðra þætti verri meðal þeirra 40 sem taldir voru upp sem búsetuskilyrði í könnuninni.

Innflytjendur óánægðari með skólakerfið en Íslendingar

Innflytjendur eru ítrekað óánægðari með skólana á Íslandi en Íslendingar. Það gæti tengst tungumálinu en hefur samt ekki verið sannreynt þegar þetta var skrifað. Það sama má segja um þætti sem tengjast vinnumarkaðnum þó svo dregið hafi úr þeim muni gagnvart atvinnuöryggi enda Covid-kreppan gengin yfir en samkvæmt erlendum rannsóknum hafa kreppur haft tilhneigingu til að bitna frekar á atvinnu innflytjenda en innfæddra.

Fleiri innflytjum hérlendis en Íslendingum finnst ferðamenn vera of margir þar sem þeir búa.

Annars eru innflytjendur almennt óánægðari með að búa þar sem þeir búa hérlendis en Íslendingar, líklegri til að flytja brott, töluvert óhamingjusamari, óánægðari með þjónustu síns sveitarfélags og fleirum þeirra finnst ferðamenn vera of margir þar sem þeir búa en Íslendingum.

 

Hér má sjá könnunina í heild sinni:

Íslenska

Pólska

Enska

 

Íbúakönnun landshlutanna er samstarfsverkefni allra landshlutasamtaka utan höfuðborgarsvæðisins, ásamt Byggðastofnun. Könnunin hófst haustið 2023 en dróst fram á veturinn 2024. Þátttakendur voru um 11.500. Könnunin byggir á tilviljunarkenndu úrtaki. Könnunin var lögð fyrir á íslensku, pólsku og ensku. 900 innflytjendur komu inn í könnunina en um 600 svöruðu flestum spurningum. Íbúakönnunin var fyrst framkvæmd á Vesturlandi árið 2004 en síðan á þriggja ára fresti. Könnunin var nú framkvæmd í annað sinn á öllu landinu.