Hér má nálgast pdf útgáfu fundargerðarinnar
Úthlutunarnefnd Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra
Fundargerð
20. fundur Úthlutunarnefndar Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra, haldinn þriðjudaginn 14. janúar 2020, kl. 13:30. Fundurinn var símafundur vegna slæms veðurs.
Mætt til fundar: Lárus Ægir Guðmundsson, formaður, Adolf H. Berndsen, Jóhanna Ey Harðardóttir, Sigríður Svavarsdóttir og Þorsteinn Jóhannes Guðmundsson
Einnig sátu fundinn starfsmenn SSNV, Sveinbjörg Rut Pétursdóttir og Ingibergur Guðmundsson. Formaður nefndarinnar stýrði fundi.
Dagskrá:
1. Bréf framkvæmdastjóra SSNV sent til formanns úthlutunarnefndar 10. janúar 2020, svohljóðandi:
„Í fjárhagsáætlun Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) fyrir árið 2020 sem samþykkt var á haustþingi samtakanna þann 18. október 2019 er gert ráð fyrir að styrkirUppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra á árinu 2020 verði:
Til menningarmála 36.000.000 kr.
Til atvinnuþróunar og nýsköpunar 34.000.000 kr.
Að auki eru til ráðstöfunar fjármunir vegna styrkja sem hafa verið lækkaðir, felldir niður eða afþakkaðir af styrkþega. Þeir fjármunir skiptast þannig:
Til menningarmála 850.000 kr.
Til atvinnuþróunar og nýsköpunar 3.371.243 kr.
Samtals eru því til úthlutunar úr Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra á árinu 2020:
Til menningarmála 36.850.000 kr.
Til atvinnuþróunar og nýsköpunar 37.371.243 kr.
Samtals til úthlutunar 74.221.243 kr.
Óskað er eftir því að innihald þessa bréfs verði bókað í fundargerð úthlutunarnefndar
Uppbyggingarsjóðs.
Komi til þess að ekki verði öllum fjármunum úthlutað mun stjórn SSNV taka ákvörðun um
ráðstöfun eftirstöðva.“
2. Vanhæfi nefndarmanna við afgreiðslu umsókna í Uppbyggingarsjóð.
Nefndarmaður Umsóknir nr.
Adolf H. Berndsen : 20037
Jóhanna Ey Harðardóttir : 20030, 20034, 20069
Þorsteinn J. Guðmundsson : 20086, 20090
Sigríður Svavarsdóttir : 20025, 20027
Þeir nefndarmenn, sem voru vanhæfir, viku af fundi á meðan viðkomandi umsókn var rædd og afgreidd.
3. Fundargerð fagráðs menningar 29. nóvember 2019
Fundargerðin var til kynningar.
4. Fundargerð fagráðs menningar 18. desember 2019
Í fundargerðinni er m.a. greint frá því hvaða umsóknir fengu lægri einkunn en 5 og þar lagt til að þeim verði hafnað, skv. a) og b) lið 15. greinar verklags- og úthlutunarreglna Uppbyggingarsjóðs.
Úthlutunarnefnd staðfesti fundargerðina og þar með tillögu fagráðsins.
5. Fundargerð fagráðs menningar 9. janúar 2020
Í fundargerð og fylgiskjali koma fram tillögur fagráðsins um styrkveitingar 2020.
6. Tillaga fagráðs menningar um styrki á sviði menningar - afgreiðsla
Fyrir fundinum lá tillaga fagráðs menningar, frá 9. jan. sl., um úthlutun styrkja. Nefndin fór yfir tillögurnar og ræddi þær.
Samþykkt að 14 umsóknir fái stofn- og rekstrarstyrk alls að upphæð 18.000.000 kr.
Samþykkt að 44 umsóknir fái verkefnastyrki alls að upphæð 18.850.000 kr.
Sjá fylgiskjal: „MENN – úthlutun 2020 – Tillaga fagráðs menningar“
7. Fundargerð fagráðs atvinnuþróunar og nýsköpunar 29. nóvember 2019
Fundargerðin var til kynningar.
8. Fundargerð fagráðs atvinnuþróunar og nýsköpunar 4. desember 2019
Í fundargerðinni er m.a. greint frá því hvaða umsóknir fengu lægri einkunn en 5 og þar lagt til að þeim verði hafnað, skv. a) og b) lið 15. greinar verklags- og úthlutunarreglna Uppbyggingarsjóðs.
Úthlutunarnefnd staðfesti fundargerðina og þar með tillögu fagráðsins.
9. Fundargerð fagráðs atvinnuþróunar og nýsköpunar 17. desember 2019
Í fundargerð og fylgiskjali koma fram tillögur fagráðsins um styrkveitingar 2020.
10. Tillaga fagráðs atvinnu- og nýsköpunar um styrki í atvinnuþróunar- og nýsköpunarhluta Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra - afgreiðsla
Fyrir fundinum lá tillaga fagráðs atvinnuþróunar og nýsköpunar, frá 17. des. sl., um úthlutun styrkja. Nefndin fór yfir tillögurnar og ræddi þær. Samþykkt að 18 umsóknir fái styrk alls að upphæð 28.382.500 kr.
Sjá fylgiskjal: „AÞN – úthlutun 2020 – Tillaga fagráðs AÞN“
11. Svarbréf til umsækjenda um styrk
Fyrir fundinum lágu drög að svarbréfum til umsækjenda. Ekki voru gerðar athugasemdir við drögin.
12. Úthlutunarhátíð
Gert er ráð fyrir að úthlutunarhátíð verði í Félagsheimilinu Hvammstanga 13. febrúar 2020, kl. 17.00.
13. Umsóknar- og úthlutunarferli - athugasemdir
Ein athugasemd kom frá fagráðunum við ferlið og verður hún tekin til skoðunar fyrir næsta umsóknar- og úthlutunarferli.
Fleira ekki tekið fyrir, fundargerð upplesin og samþykkt, fundi slitið kl. 14.35.