Viltu far? Örráðstefna um almenningssamgöngur

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra standa fyrir örráðstefnu um almenningssamgöngur miðvikudaginn 5. maí kl. 11-12.

Kynnt verður fýsileikakönnun almenningssamgangna á Norðurlandi vestra sem unnin var af Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri (RHA) með styrk úr byggðaáætlun. Jafnframt flytja erindi þau Nanna Steina Höskuldsdóttir frá Samtökum sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) og Halldór Jörgensson forstöðumaður almenningssamgangna hjá Vegagerðinni.

 

Dagskrá:

Fýsileikakönnun almenningssamgangna á Norðurlandi vestra - Hjalti Jóhannesson sérfræðingur hjá RHA

Nýjar leiðir í almenningssamgöngum - Nanna Steina Höskuldsdóttir, SSNE

Breytingar á greiðslufyrirkomulagi og á nemakortum - Halldór Jörgensson, Vegagerðinni

 

Ráðstefnunni verður streymt á facebook síðu SSNV.

Hægt verður að spyrja spurninga á slido.com #viltufar