Viðskiptahraðall fyrir sprotafyrirtæki í ferðaþjónustu

Mynd tekin af heimasíðu Klak Icelandic Startups
Mynd tekin af heimasíðu Klak Icelandic Startups

Viðskiptahraðallinn Startup Tourism er fyrir sprotafyrirtæki í ferðaþjónustu. Markmið hraðalsins er að hvetja til nýsköpunar og frumkvöðlastarfs á sviði ferðaþjónustu, styrkja stoðir nýrra fyrirtækja, fjölga afþreyingarmöguleikum, ýta undir tæknivæðingu í ferðaþjónustu og stuðla að dreifingu ferðamanna víðsvegar um landið, allan ársins hring.

 

Startup Tourism er fimm vikna viðskiptahraðall sem er sniðinn að þörfum nýrra fyrirtækja í ferðaþjónustu. Markmið hraðalsins er að hvetja til nýsköpunar á sviði ferðaþjónustu, styrkja stoðir nýrra fyrirtækja, fjölga afþreyingarmöguleikum og stuðla að dreifingu ferðamanna víðsvegar um landið, allan ársins hring.

Allt að tíu fyrirtæki verða valin til þátttöku. Þau fá aðgang að fullbúnu skrifstofurými meðan á verkefninu stendur og gefst kostur á að njóta fræðslu og þjálfunar og þróa áfram viðskiptahugmyndir sínar undir leiðsögn reyndra frumkvöðla, fjárfesta, lykilaðila á sviði ferðaþjónustu og annarra sérfræðinga og stjórnenda þeim að kostnaðarlausu.

 

Startup Tourism er fimm vikna hraðall sem er hugsaður fyrir þátttakendur af öllu landinu. Hraðlinum er skipt upp í þrjár lotur sem fara fram í Grósku í Reykjavík og aðrar tvær sem fara fram á netinu. 

 

 

 

Opið er fyrir umsóknir til og með 13. október

Kynnið ykkur Startup Tourism og skráningarform nánar hér.