Drift EA ásamt KPMG, Tækniþróunarsjóð, Rannís, SSNE og Háskólanum á Akureyri stendur fyrir viðburði um styrkjamöguleika frumkvöðla og fyrirtækja í Messanum hjá Drift EA nk. þriðjudag 14. janúar.
Vilt þú vita meira um skattaafslætti og endurgreiðslur fyrir rannsóknar- og þróunarvinnu? Eða ert þú að leita að fjámögnun fyrir frumkvöðlaverkefni þitt?
Ekki þá missa af þessu mikilvæga viðburði þar sem sérfræðingar frá Rannís, KPMG og Háskólanum á Akureyri veita innsýn í fjölbreytta styrki, skattaívilnanir og þjónustu sem geta sparað þér bæði tíma og peninga!
Fyrirlesarar:
• Fulltrúar frá Rannís - kynning á styrkjum
• Helgi Jósepsson frá KPMG - þjónusta við frumkvöðla og upplýsingar um endurgreiðslur R&Þ
• Svava Björk Ólafsdóttir frá HA - yfirsýn yfir styrkjaumhverfið
Fundarstjóri er Sesselja I. Barðdal, framkvæmdastjóri Drifar EA
Léttar veitingar í boði
Skráning fer fram hér: https://driftea.notion.site/17570f5b7efe81fea113ec52009720ee
DriftEA er óhagnaðardrifið og sjálfstætt hreyfiafl sem styður við nýsköpun og frumkvöðla. Áhersla er lögð á að skapa nýjar stoðir atvinnulífs og byggja upp aðlaðandi og spennandi tækifæri fyrir komandi kynslóðir sem vilja búa á Norðurlandi.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550