Viðaukasamningur um stofnun Þekkingargarða á Norðurlandi vestra

Sveinbjörg Rut Pétursdóttir framkvæmdastjóri SSNV og Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri Skagafjarða…
Sveinbjörg Rut Pétursdóttir framkvæmdastjóri SSNV og Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri Skagafjarðar.

Undirritaður hefur verið viðaukasamningur um styrk til stofnunar þekkingargarða á Norðurlandi vestra. Samningurinn er gerður með vísan í aðgerð C.1 Sértæk verkefni sóknaráætlanasvæða í stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2022–2036 og byggir á styrkumsókn sem landshlutasamtök Norðurlands vestra lögðu fram fyrir hönd Skagafjarðar.

Verkefnið miðar að því að koma á fót þekkingargörðum með höfuðstöðvar á Sauðárkróki, þar sem atvinnulíf, Háskólasamstæða Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra, Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra og sveitarfélög vinna saman að eflingu sjálfbærrar matvælaframleiðslu sem byggir á styrkleikum svæðisins.

Með stofnun þekkingargarðanna er stefnt að því að efla samkeppnishæfni atvinnulífsins, styðja við nýsköpun og menntun, skapa störf og ýta undir samfélagslega þróun á svæðinu. Gert er ráð fyrir að fjölbreyttur hópur fyrirtækja innan garðanna styrki matvælaframleiðslu og nýsköpun, og laði að menntað fólk með þekkingu og reynslu.

Heildarupphæð samningsins nemur 8 milljónum króna.

Þetta er mikilvægt skref í átt að því að styrkja innviði fyrir þekkingardrifna atvinnuþróun og sjálfbæra framtíð á Norðurlandi vestra.