Mannamót Markaðsstofa landshlutanna fór fram þann 16. janúar 2025 í Kórnum í Kópavogi. Viðburðurinn var hluti af Ferðaþjónustuvikunni sem stóð yfir daganna 14.-16. janúar. Mannamót er vettvangur þar sem ferðaþjónustufólk af landsbyggðinni fær tækifæri til að kynna þjónustu sína og vöruframboð fyrir ferðaskrifstofum og öðrum fagaðilum á höfuðborgarsvæðinu. Einnig eru erlendir söluaðilar Íslandsferða í síauknu mæli farnir að nýta sér viðburðinn til að kynnast nýjungum og viðhalda samböndum sínum.
Vel var mætt frá fulltrúum ferðaþjónustunnar á Norðurlandi vestra, en alls tóku 17 fyrirtæki af svæðinu þátt. Í ár voru í fyrsta skipti þrír aðilar frá Skagaströnd, en kayakar.is tóku í fyrsta sinn þátt í viðburðinum. Dagurinn þótti einstaklega vel heppnaður og Markaðsstofur landshlutana, sem skipuleggja viðburðinn voru hæstánægðar með metaðsókn.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550