7. haustþing SSNV fór fram fimmtudaginn 12. október og var haldið á Hótel Laugarbakka í Húnaþingi vestra. Þingið var afar vel sótt. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, Arnar Þór Sævarsson framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga, Stefán Vagn Stefánsson, alþingismaður Norðvesturkjördæmis og kjörnir fulltrúar á Norðurlandi vestra voru meðal gesta.
Vönduð og fjölbreytt erindi fyrirlesara á þinginu vörpuðu skýru ljósi á hin ýmsu tækifæri sem svæðið á inni og gáfu innsýn í hin ýmsu verkefni sem þegar eru í vinnslu, með nýsköpun, nýjar fjárfestingar og umhverfismál að leiðarljósi.
Mikil umræða skapaðist um fækkun opinberra stöðugilda á Norðurlandi vestra en samkvæmt nýrri skýrslu á vegum Byggðastofnunar hefur stöðugildum fækkað um 11 á svæðinu. Þingið sendi frá sér ályktun þar sem þingið skorar á ríkisstjórn Íslands að standa við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarflokkanna þar sem m.a. er lögð áhersla á markmið um hlutfall opinberra starfa á landsbyggðinni, að fleiri störf hjá ríkinu verði óstaðbundin til að styðja við byggðaþróun, og að hagrænum hvötum verði beitt í byggðaþróun s.s. í gegnum Menntasjóð námsmanna. Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og Stefán Vagn 1. þingmaður Norðvesturkjördæmis fjölluðu einnig um í sínum ræðum að opinber störf þurfi að vera staðbundin eigi þau að styðja við byggðaþróun á landsbyggðinni. Aðrar umræður og afgreiðslur gengu vel, meðal þeirra voru fjárhags- og starfsáætlun samtakanna fyrir árið 2024.
Að þingi loknu var svo skrifað undir viljayfirlýsingu um nýtingu glatvarma í Húnabyggð.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550