Vegvísir

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur opnað vefgátt, vegvisir.is, þar sem aðgengilegar eru upplýsingar um áætlanir samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins. Þar er hægt að nálgast lykilupplýsingar, svo sem um fjármagn og markmið áætlana og jafnframt fylgjast með framvindu aðgerða í einstaka landshlutum. Á vefnum er m.a. að finna aðgengilega kortasjá þar sem velja má milli samgönguáætlunar, byggðaáætlunar og fjarskiptaáætlunar og sjá aðgerðir og framkvæmdir þessara áætlana, hvernig þær raðast niður eftir stöðum ásamt stöðu þeirra.

 

Slóð inn á vefinn: www.vegvisir.is