Miðvikudaginn 1. apríl 2020 kl 13-16.30 verður blásið til ráðstefnu um úrgangsmál í breiðum skilningi á Hótel KEA á Akureyri. Er ráðstefnan lokahnykkurinn á störfum starfshóps Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra sem hafði til skoðunar framtíðarskipan úrgangsmála á Norðurlandi. Í vinnu hópsins var fjallað um úrgangsmál svæðiðsins og m.a. greindir úrgangsstraumar og tækifæri til að ná auknum árangri og hagræðingu í þessum viðamikla málaflokki. Á ráðstefnunni verða haldin fjölmörg áhugaverð erindi, m.a. um niðurstöður greiningar á úrgangsmálum á Norðurlandi, útflutning á sorpi, afsetningu lífræns úrgangs, úrgangsstjórnun hjá fyrirtækjum, líforkuver, smartvæðingu sorps, hringrásarhagkerfið, sjónarhorn sveitarfélags og fyrirtækis sem hafa náð árangri í úrgangsmálum o. fl. Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra mun opna ráðstefnuna.
Ráðstefnan er öllum opin.
Verkefnið er samstarfsverkefni Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra og er stutt af sóknaráætlunum beggja landshluta.
Dagskrá nánar auglýst síðar.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550