Opnað hefur verið fyrir umsóknir í úthlutunarferli Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra fyrir árið 2020. Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 miðvikudaginn 20. nóvember 2019.
Veittir eru styrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar, verkefnastyrkir til menningarstarfs og stofn- og rekstrarstyrkir til menningarstarfs. Sótt er um á rafrænni umsóknargátt á heimasíðu SSNV. Smellt er á logo Sóknaráætlunar á forsíðu heimasíðunnar til að komast á umsóknargátt. Frekar leiðbeiningar má nálgast hér.
Starfsmenn SSNV verða með vinnustofur/viðtalstíma á neðangreindum stöðum þar sem boðið verður upp á einstaklingsaðstoð við gerð umsókna, veittar upplýsingar um styrkmöguleika, auk almennrar aðstoðar í tengslum við atvinnu- og menningarstarfsemi.
Þriðjudagur 5. nóvember
Kl. 10-12 Skrifstofa SSNV, Einbúastíg 2, Skagaströnd
Kl. 13-16 Kvennaskólinn, Árbraut 31, Blönduósi
Miðvikudagur 6. nóvember
Kl. 13-16 Skrifstofa SSNV, Höfðabraut 6, Hvammstanga
Föstudagur 8. nóvember
Kl. 10-12 Hótel Varmahlíð
Kl. 10-12 Vesturfarasetrið, Frændgarður, Hofsósi
Kl. 13-17 Skrifstofa SSNV, Faxatorgi, Sauðárkróki
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550