Opnað verður fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Norðurlands vestra á morgun, 6. október. Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 föstudaginn 12. nóvember 2021. Sækja skal um styrki rafrænt á Sóknaráætlun Norðurlands vestra. Umsækjendur þurfa að skrá sig inn með íslykli eða rafrænum skilríkjum.
Umsækjendur eru hvattir til þess að kynna sér vel verklags- og úthlutunarreglur. Viðtalstímar/vinnustofur verða auglýstar þegar nær dregur.
Nánari upplýsingar og leiðbeiningar er að finna hér.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550