Tækifæri í fjárfestingu í atvinnulífi á Norðurlandi

Kynningarfundur með fjárfestingafélaginu Tækifæri hf. verður haldinn fimmtudaginn 7. apríl n.k. og hefst klukkan 12  á Kaffi Krók (boðið verður upp á súpu og brauð).

 Á fundinum mun Jón Steindór Árnason framkvæmdastjóri Tækifæris kynna starfsemi félagsins og fjárfestingar, auk þess að fara yfir möguleika í nýjum fjárfestingum.

 Tækifæri hf. er fjárfestingafélag sem fjárfestir í nýsköpun á Norðurlandi.  Félagið var stofnað árið 1999 og hefur fjárfest í yfir 50 fyrirtækjum á starfstíma sínum.  Tilgangur með starfsemi þess er að taka þátt í stofnun og starfsemi fyrirtækja sem rekin eru á grundvelli arðsemisjónarmiða, fela í sér nýmæli í atvinnulífinu og eru mikilvægur þáttur í uppbyggingu atvinnulífs á starfssvæði félagsins.

Áhugasamir eru hvattir til að mæta.

Samskonar fundir eru fyrirhugaðir á næstunni á Blönduósi og Hvammstanga.