Ýmsir sjóðir standa frumkvöðlum til boða fyrir hin ýmsu verkefni. Hér verður tæpt á nokkrum af þeim. Í flestum er auglýst eftir umsóknum einu sinni á ári og fellur það yfirleitt á sama tímabili á hverju ári. Ef óljóst er hvar verkefnið fellur best að er hægt að hafa samband við starfsmann SSNV fyrir frekari ráðgjöf. Listinn, sem unnin er upp úr yfirliti sem Poppins & Partners gerðu, er ekki tæmandi.
Loftslagssjóður. Síðasti umsóknarfrestur var til 30.01.2020. Loftslagssjóður er sérstakur sjóður sem heyrir undir umhverfis- og auðlindaráðherra. Hlutverk sjóðsins er að styðja við nýsköpunarverkefni á sviði loftslagsmála og verkefni sem lúta að kynningu og fræðslu um áhrif loftslagsbreytinga. Styrkir eru meðal annars ætlaðir til þess að styrkja rannsóknir og þróunarstarf í tengslum við innleiðingu á nýjum loftslagsvænum tæknilausnum og hönnun.
Nýsköpunarsjóður námsmanna. Næsti umsóknarfrestur er 08.05.2020. Markmið sjóðsins er að gefa háskólum, rannsóknastofnunum og fyrirtækjum tækifæri til að ráða námsmenn í grunn- og meistaranámi við háskóla til sumarvinnu við metnaðarfull og krefjandi rannsóknarverkefni.
Atvinnumál kvenna. Síðasti umsóknarfrestur var til 11.03.2020. Fyrirtæki þurfa að vera a.m.k. 51% í eigu kvenna og stjórnað af konu. Um nýnæmi skal vera að ræða, annaðhvort nýja vöru/þjónustu eða þróun vöru/þjónustu. Hámarksstyrkur er 4.000.000 og ekki eru veittir styrkir lægri en 600.000. Mótframlag þarf að vera 50% af kostnaði. Veittir eru styrkir til gerðar viðskiptaáætlunar, áætlanagerðar, þróunarkostnaðar og markaðssetningar. Ef fyrirtæki er nýstofnað en ekki komið í rekstur og/eða liggi trúverðug viðskiptaáætlun fyrir og viðkomandi að hefja rekstur er hægt er að sækja um styrk til að hrinda hugmynd í framkvæmd (launastyrkur fyrir viðkomandi styrkþega).
Rannsóknasjóður. Næsti umsóknarfrestur er 15.06.2020. Veittur er styrkur til skilgreindra rannsóknaverkefna vísindafólks og rannsóknanema í grunnrannsóknum og hagnýtum rannsóknum.
Innviðasjóður. Næsti umsóknarfrestur er 20.05.2020. Sjóðurinn er ætlaður sem fjármögnun kaupa á dýrum rannsóknatækjum, uppbyggingu rannsóknainnviða og aðgangs að rannsóknainnviðum.
Sóknarstyrkir. Næsta umsóknarferli verður haustið 2020. Markmið sjóðsins er undirbúningur umsókna í alþjóðlega rannsóknasjóði, einkum Horizon 2020.
Frádráttur frá tekjum erlendra sérfræðinga. Umsóknarferli er alltaf opið. Markmiðið er að laða að erlenda sérfræðinga sem búa yfir nauðsynlegri þekkingu og hæfni til starfa hér á landi og með því að gera fyrirtækjum auðveldara fyrir að fá til sín slíka aðila svo að ekki þurfi að fara með viðkomandi starfsemi úr landi.
Jafnréttissjóður. Síðasti umsóknarfrestur var til 03.04.2020. Tilgangur sjóðsins er að fjármagna eða styrkja verkefni og rannsóknir sem miða að því að efla jafnrétti kynjanna í íslensku samfélagi og á alþjóðavísu.
Uppbyggingarsjóðir Norðurlands vestra. Næsta umsóknarferli verður auglýst í október 2020. Tilgangur Uppbyggingarsjóðs er að styrkja annars vegar menningar- og hinsvegar atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni á Norðurlandi vestra. Sjóðurinn er samkeppnissjóður og eru umsóknir metnar út frá þeim markmiðum og áherslum sem koma fram í Sóknaráætlun Norðurlands vestra.
Orkurannsóknasjóður. Síðasti umsóknarfrestur var til 13.01.2020. Markmið sjóðsins er að veita styrki til námsmanna, rannsóknarverkefna á vegum háskóla, stofnana, fyrirtækja og einstaklinga.
Eurostars. Síðasti umsóknarfrestur var til 13.02.2020. Eurostars eru fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki sem stunda sjálf rannsóknar- og þróunarstarfsemi (e. R&D performing SMEs), sem eru í alþjóðlegu samstarfi og stefna á markað.
Matvælasjóður. Matvælasjóður mun hafa það hlutverk að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla úr landbúnaði og sjávarútvegi. Nánari útfærsla er væntanleg.
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða. Síðasti umsóknarfrestur var til 29.10.2019. Hlutverk Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða er að veita styrki til uppbyggingar, viðhalds og verndunar ferðamannastaða sem eru í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila um land allt og til aðgerða sem stuðla að öryggi ferðamanna og verndun náttúru landsins. Einnig er sjóðnum ætlað að fjölga viðkomustöðum ferðafólks til að draga úr álagi á fjölsótta ferðamannastaði.
Átaksverkefni Hönnunarsjóðs. Umsóknarfrestur er til 18.05.2020. Veittir verða styrkir til margvíslegra verkefna á sviði hönnunar og arkitektúrs og lögð áhersla á verkefni til þróunar, nýsköpunar, menningarlífs og atvinnusköpunar, gjarnan með þverfaglegri nálgun. Markmið og úthlutunarreglur Hönnunarsjóðs gilda við úthlutunina, en tekið verður tillit til aðstæðna vegna Covid-19.
Hönnunarsjóður. Næsti umsóknarfrestur er 10.09.2020. Hönnunarsjóður veitir styrki til margvíslegra verkefna á sviði hönnunar og arkitektúrs: þróunar og rannsókna, verkefna og markaðsstarfs auk ferðastyrkja. Hlutverk Hönnunarsjóðs er að efla þekkingu, atvinnu- og verðmætasköpun á sviði hönnunar og arkitektúrs með fjárhagslegum stuðningi. Hönnunarsjóður stuðlar einnig að auknum útflutningi íslenskrar hönnunar með því að styrkja kynningar- og markaðsstarf erlendis.
Nordplus. Ýmsir sjóðir eru í boði innan Nordplus áætlunarinnar. Fyrir háskólastigið, samstarfsverkefni menntastofnana á ólíkum stigum, leik- grunn- og framhaldsskólastig, tungumál og fullorðinsfræðsla. Frekari útlistun og umsóknarfrestir er að finna á heimasíðu Rannís.
Erasmus +. Erasmus+styrkir verkefni af ýmsum toga en einnig er um að ræða samstarfsfleti milli landa og miðlun á þekkingu á sameiginlegum vefsvæðum. Sjóðir innan Erasmus+ eru Kennara og starfsmannaskipti á háskólastigi, nám og þjálfun innan starfsmenntunar, samstarfsverkefni á háskólastigi, nám og þjálfun á leik-, grunn-, og framhaldsskólastigi, samstarfsverkefni á leik-, grunn-, og framhaldsskólastigi, samstarfsverkefni á sviði fullorðinsfræðslu, samstarfsverkefni á sviði starfsmenntunar og stúdentaskipti og starfsnám á háskólastigi. Allar frekari upplýsingar eru á heimasíðu Rannís.
Þróunarsjóður námsgagna. Síðasti umsóknarfrestur var 04.02.2020. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að nýsköpun, þróun, gerð og útgáfu námsgagna fyrir leik-grunn- og framhaldsskóla með það að markmiði að tryggja framboð og fjölbreytileika námsgagna í samræmi við þarfir nemenda og skóla.
Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara. Síðasti umsóknarfrestur var til 04.02.2020. Hægt er að sækja um styrki til að skipuleggja sumarnámskeið framhaldsskólakennara í samstarfi við bókhaldsskylda fræðslu- eða menntastofnun, gestafyrirlestur á vegum fagfélags eða skóla, þátttöku í ráðstefnum og vettvangsnám.
Kvikmyndasjóður. Umsóknarferli er opið allt árið. Kvikmyndasjóður veitir styrki til handritsgerðar, þróunarverkefna, framleiðslu íslenskra kvikmynda og kynningar á íslenskum kvikmyndum.
Myndlistarsjóður (Átaksverkefni). Umsóknarfrestur er til 11.05.2020. Samkvæmt þingsályktun um sérstakt tímabundið fjárfestingaátak til að vinna gegn samdrætti í hagkerfinu í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru hefur Myndlistarsjóði verið falið að úthluta fé til átaksverkefna á sviði myndlistar. Einungis verða veittir styrkir til sjálfstætt starfandi listamanna og því geta stofnanir, gallerí og félög ekki sótt um styrk. Veittir verða 500.000 kr. styrkir.
Barnamenningarsjóður. Síðasti umsóknarfrestur var 01.04.2020. Hlutverk Barnamenningarsjóðs er að fjármagna og styðja við fjölbreytta starfsemi á sviði barnamenningar með áherslu á sköpun, listir og virka þátttöku barna í menningarlífi.
Listamannalaun. Næsti umsóknarfrestur er 01.10.2020. Tilgangur sjóðsins er að efla listsköpun í landinu. Alþingi veitir árlega fé af fjárlögum til þess að launa listamenn í samræmi við lög 57/2009.
Endurgreiðsla vegna kvikmyndagerðar. Nefnd um endurgreiðslu kemur saman að jafnaði tvisvar í mánuði og fjallar um umsóknir. Umsækjandi þarf að skila umsókn ásamt fylgigögnum í seinasta lagi viku fyrir næsta fyrirhugaða fund svo unnt sé að taka umsókn til umfjöllunar. Framleiðendur kvikmynda eða sjónvarpsefnis á Íslandi eiga kost á endurgreiðslum á allt að 25% af framleiðslukostnaði sem fellur til hér á landi. Skilyrði er að viðkomandi framleiðsla sé til þess fallin að koma íslenskri menningu á framfæri, kynna sögu lands eða náttúru eða að viðkomandi framleiðsla sé til þess fallin að stuðla að aukinni reynslu, þekkingu á listrænum metnaði þeirra sem að framleiðslunni standa.
Átaksverkefni Tónlistarsjóðs vorið 2020. Umsóknarfrestur er til 08.05.2020. Markmið átaksverkefna er að vinna gegn samdrætti í hagkerfinu í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru. Reglur um úthlutun úr sjóðnum verða rýmri en alla jafna. Allir sjálfstætt starfandi tónlistarmenn og skipuleggjendur tónlistarverkefna geta sótt um vel skilgreind og afmörkuð verkefni.
Tónlistarsjóður. Umsóknarfrestir eru í maí og nóvember ár hvert, síðast 4. maí 2020. Sjóðurinn skiptist í tvær deildir, tónlistardeild og markaðs- og kynningardeild. Tónlistardeild veitir styrki til almennrar tónlistarstarfsemi, en markaðs- og kynningardeild veitir styrki til kynningar og markaðssetningar á tónlist og tónlistarfólki hér á landi og erlendis.
Hljóðritasjóður. Umsóknarfrestur er í mars og september á hverju ári. Hlutverk Hljóðritasjóðs er að efla íslenska hljóðritagerð í tónlist með fjárhagslegum stuðningi við útgáfu hljóðrit. Hljóðritasjóður veitir styrki til hljóðritunar nýrrar, frumsamdrar tónlistar sem stuðla á að nýsköpun. Veittir eru styrkir í almenn verkefni og þróunarverkefni.
Markaðsstyrkur ÚTÓN. Umsóknarfrestir eru fyrir 1. febrúar, 1. maí, 1. ágúst og 1. nóvember. Markaðsstyrkir eru ætlaðir til þess að gera tónlistarmönnum kleift að framkvæma stærri kynningarverkefni á erlendum markaði. Styrkirnir eru veittir fjórum sinnum á ári. Þá er úthlutað tveimur styrkjum að upphæð 500.000 kr. og einum að upphæð 1.000.000 kr. hverju sinni. Stjórn Útflutningssjóðs áskilur sér þann rétt að veita umsækjendum hærri eða lægri upphæðir eftir fjárþörf og gæðum verkefnisins.
Ferðastyrkur ÚTÓN. Ekki er opið fyrir umsóknir í apríl og maí vegna Covid-19. Tilkynnt verður á heimasíðunni hvenær opnað verður aftur fyrir umsóknir. Ferðastyrkir eru veittir í hverjum mánuði. Að jafnaði er veittur stykur upp á 50.000 krónur á mann, en sjóðstjórn hefur leyfi til að lækka eða hækka þá upphæð, hámarksstyrkur á mann er 100.000. Hvert verkefni getur að hámarki hlotið styrk upp á 400.000 krónur.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550