Alls fengu 63 umsóknir í Uppbyggingarsjóð Norðurlands vestra brautargengi samtals að upphæð 60 milljón kr. Á sviði atvinnuþróunar- og nýsköpunar fengu 12 umsóknir styrk samtals upphæð 30 milljónir og á sviði menningar var samþykkt að styrkja 51 umsókn að upphæð 30 milljónir kr.
Í september sl. auglýsti SSNV eftir umsóknum í Uppbyggingarsjóð Norðurlands vestra á sviði menningar, atvinnuþróunar og nýsköpunar fyrir árið 2025. Alls bárust 130 umsóknir. Þar af voru 50 atvinnu- og nýsköpunar verkefni, 69 menningarverkefni og 11 umsóknir um stofn- og rekstrarstyrk. Alls var óskað eftir 242.821.781 milljón kr.
Við tók yfirferð úthlutunarnefndar til fagráða sjóðsins og lauk því ferli í byrjun desember. Niðurstöður voru þá sendar til umsækjenda.
Fjármagn Uppbyggingarsjóðsins er hluti af samningi Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra við stjórnvöld um framkvæmd Sóknaráætlunar Norðurlands vestra 2025-2029.
Við óskum styrkhöfum innilega til hamingju og erum við spennt að sjá hvert verkefnin munu halda í framtíðinni.
Hér getið þið séð yfirlit yfir styrkhafa Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra árið 2025.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550