Út er komin skýrslan Stöðugreining landshluta 2024 á vegum Byggðastofnunar.
Stöðugreiningu landshluta er ætlað að styðja við vinnslu sóknaráætlana landshluta. Stöðugreiningunni er skipt í þrettán flokka, allt frá mannfjöldaþróun til efnahagsþróunar og lýðheilsu. Hver þessara þrettán flokka skiptis í marga undirflokka þar sem farið er yfir vítt svið af opinberum gögnum til að gefa sem besta mynd af því hvernig landshlutarnir standa hver um sig í hinum ýmsu málaflokkum.
Hlekkir eru í skýrslunni á þau mælaborð opinberra stofnanna sem til eru, þar er hægt að glöggva sig nánar á upplýsingum sem fram koma í stöðugreiningunni og skoða jafnvel á sveitarfélagagrunni en ekki eingöngu landshlutagrunni.
Stöðugreiningunni er ætlað að vera lifandi skjal og munu gögn verða uppfærð þegar ný berast eitthvað fram eftir vetri.
Hægt er að lesa skýrsluna hér.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550