Dagana 6. og 7. september fór fram á Akureyri LÝSA – Rokkhátíð samtalsins. LÝSA er hátíð þar sem fólk á í samtali um samfélagið. Þar fara fram fjörugar umræður í bland við hressa tónlist og skemmtiatriði. Í ár átti SSNV fulltrúa á hátíðinni en Unnur Valborg Hilmarsdóttir framkvæmdastjóri SSNV flutti erindi um hlutverk landshlutasamtaka í innleiðing Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Í nýjum samningsdrögum um sóknaráætlun er kveðið á um að heimsmarkmiðin skuli höfð í forgrunni ásamt sóknaráætlunum landshlutanna við skilgreiningu verkefna og því ljóst að landshlutasamtökin munu leika stórt hlutverk í þessu mikilvæga verkefni.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550