Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) hafa látið vinna skýrslu um stöðu heilbrigðisþjónustu á Norðurlandi vestra. Skýrslan var unnin af Rannsóknarmiðstöð Háskólans á Akureyri og var vinnsla hennar áhersluverkefni sóknaráætlana landshluta árið 2017.
Í skýrslunni er dregin saman staða heilbrigðisþjónustu í landshlutanum og borið saman við samanburðasvæði. Helsti munur á samanburðarsvæðinu (Vestfjörðum) og Norðurlandi vestra var sá að þar er skurðlæknir og fæðingarþjónusta sem ekki er til staðar á Norðurlandi vestra. Nánast engir íbúar á Norðurlandi vestra eru í minna en klukkustundar fjarlægð frá sérhæfðu sjúkrahúsi með aðgang að skurðstofu. Annars staðar á landinu er hlutfallið frá 50-100%. Þess ber að geta að skurðstofa er til staðar á Sauðárkróki en hún er nánast eingöngu notuð í mjög einföld verkefni. Brýnt er að koma þeirri aðstöðu í betri not og um leið auka öryggi íbúa í landshlutanum.
Einnig kemur fram að sjúkraflutningar hafa aukist á svæðinu öllu. Sjúkrabílar eru staðsettir á Sauðárkróki, Blönduósi og Hvammstanga (2 bílar á hverjum stað). Oft þarf að fara með sjúklinga langar leiðir og er á hætta á að upp komi mönnunarvandi.
Ánægjulegt er að sálfræðiþjónusta hefur aukist á svæðinu öllu en kallað er eftir þjónustu geðlækna og segir skýrsluhöfundur að það sé eitt brýnasta verkefið sem nú blasir við.
Skýrslan er aðgengileg hér.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550