Verkefnastjóri
Skagafjörður óskar eftir að ráða drífandi einstakling í starf verkefnastjóra, sem heyrir undir sviðsstjóra stórnsýslu- og fjármálasviðs. Um er að ræða 100% starfshlutfall og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Verkefnastjóri vinnur m.a. að skilgreindum verkefnum fyrir atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd með það að markmiði að þróa áfram ákveðin verkefni sem eru til þess fallin að stuðla að uppbyggingu, nýsköpun og framþróun í sveitarfélaginu. Starfinu fylgja mannaforráð.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Ráðgjöf og framþróun verkefna á sviðum atvinnu- og ferðamála, s.s. stuðning við frumkvöðla og nýsköpun, vinna við greiningu innviða og stefnumótun, auk samskipta við aðra opinbera stjórnsýslu eftir ákvörðun yfirmanna.
- Ýmis starfsemi á sviði menningarmála, utanumhaldi viðburða, kynningu og markaðssetningu á starfsemi sveitarfélagsins.
- Viðhaldi og þróun heimasíðna og samfélagsmiðla á vegum sveitarfélagsins.
Þekkingar- og hæfnikröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Farsæl reynsla af markaðs- og kynningarmálum.
- Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði, jákvæðni og metnaður í starfi.
- Skipulagsfærni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Framúrskarandi tölvukunnátta og þekking á upplýsingatækni.
- Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur
- Þekking og reynsla af rekstri og áætlanagerð kostur.
- Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
- Almenn ökuréttindi.
Nánari upplýsingar hér
Leiðtogi stafrænnar þróunar
Skagafjörður óskar eftir að ráða framsækinn einstakling í starf leiðtoga stafrænnar þróunar hjá sveitarfélaginu. Um er að ræða 100% starfshlutfall og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Leiðtogi stafrænnar þróunar er leiðandi í innleiðingu nýrra tæknilausna og starfsfólki sveitarfélagsins til stuðnings og ráðgjafar um tækninýjungar og stafrænar lausnir. Einnig mótar leiðtoginn stefnu og framtíðarsýn í samræmi við áherslur sveitarfélagsins í stafrænum innviðum. Leiðtogi stafrænnar þróunar heyrir undir sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs en vinnur þvert á svið sveitarfélagsins.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Verkefnastjórn umbreytingaverkefna hjá sveitarfélaginu á sviði stafrænnar þróunar
- Innleiðing nýrra tæknilausna hjá sveitarfélaginu
- Ábyrgð á upplýsingaöryggi
- Greining á möguleikum tækifærum, endurskoðun ferla og verklags
- Leiða þverfagleg verkefnateymi
- Greining á þörfum íbúa/notenda
- Áætlanagerð og greining gagna
- Fræðsla og aðstoð til starfsmanna í nýtingu stafrænna lausna
- Fylgja eftir og miðla sjónarmiðum sveitarfélagsins á sviði upplýsingatækni
- Kerfisstjórn á ýmis kerfi sem eru í notkun í stjórnsýslu sveitarfélagsins
- Samskipti við þjónustuaðila í stafrænum lausnum
Þekkingar- og hæfnikröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Farsæl reynsla af verkefnum sem falla að starfinu
- Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum
- Skipulagsfærni, sjálfstæði í vinnubrögðum og frumkvæði
- Framúrskarandi tölvukunnátta og þekking á upplýsingatækni
- Hæfni í þverfaglegu samstarfi
- Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur
- Þekking og reynsla af rekstri og áætlanagerð kostur
- Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
Nánari upplýsingar hér