Skagafjörður óskar eftir að ráða sálfræðing

Skagafjörður auglýsir eftir sálfræðingi til starfa hjá fjölskyldusviði sveitarfélagsins. Starfið er á sviði skóla, félags- og barnaverndarþjónustu. Um er að ræða 100% stöðu, upphaf starfs er samkomulagsatriði. Sálfræðingur vinnur í þverfaglegu samstarfi við starfsfólk skóla, sérfræðinga fjölskyldusviðs sem og aðra sérfræðinga. Sálfræðingur heyrir undir Leiðtoga farsældar, fræðslu og ráðgjafar og er með starfsstöð í ráðhúsi á Sauðárkróki.

 
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ráðgjöf til foreldra barna og starfsfólks leik- og grunnskóla.
  • Sálfræðilegar athuganir, viðtöl og greiningar á börnum, ráðgjöf og eftirfylgd mála.
  • Þverfaglegt samstarf við sérfræðinga innan og utan fjölskyldusviðs.
  • Fræðsla fyrir foreldra, nemendur og starfsfólk skóla.
 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sálfræðimenntun og réttindi til að starfa sem sálfræðingur á Íslandi.
  • Þekking og reynsla af vinnu með börnum.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og mikil reynsla af teymisvinnu.
  • Frumkvæði, sjálfstæði, fagmennska, skipulagshæfni og nákvæmni.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
  • Almenn ökuréttindi.
  • Hreint sakavottorð.

Lesið nánar um starfið hér.