Sara Björk Þorsteinsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri farsældar á Norðurlandi vestra.
Sara útskrifaðist með BS gráðu í búvísindum árið 2015 og lauk síðan BS í hjúkrunarfræði árið 2021. Vegna áhuga á lýðheilsu í gegnum íþróttir og hreyfingu þá bætti hún við sig diplómagráðu í styrktar- og þolþjálfun sumarið 2024 og lauk hún einnig námskeiði í Solihull-aðferðinni vorið 2024 hjá Geðverndarfélagi Íslands. Sara brennur fyrir uppbyggingu samfélagsins sem hún býr í en hún starfar sem hjúkrunarfræðingur á sjúkrahúsinu á Hvammstanga og nýtir þekkingu sína í búvísindum sem bóndi samhliða því starfi. Sem hjúkrunarfræðingur hefur hún góða reynslu í mannlegum samskiptum, virkri hlustun, af því að starfa sjálfstætt og bera ábyrgð. Sara Björk verður með starfsstöð á skrifstofu SSNV á Blönduósi.
Með ráðningu verkefnastjóra farsældar á Norðurlandi vestra er verið að framfylgja samningi við mennta- og barnamálaráðuneytið um ráðningu verkefnastjóra sem leiða mun undirbúning að stofnun svæðisbundins farsældarráðs í landshlutanum skv. 5. gr. Farsældarlaga. Samningurinn var undirritaður 10. október 2024.
Sara mun þess vegna vinna náið með forsvarsmönnum innleiðingar farsældarþjónustu í sveitarfélögum landshlutans og leiða saman fagfólk sem vinnur að málefnum barna í því skyni að undirbúa svæðisbundið farsældarráð. Samningurinn er til tveggja ára og áætlað er að fyrir lok samningstímans hafi farsældarráð landshlutans verið kallað saman og undirbúningur hafinn að vinnu við fyrstu áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða í þágu farsældar barna.
Við bjóðum Söru hjartanlega velkomna í hóp starfsmanna SSNV. Hjá SSNV starfar metnaðarfullt teymi sem vinnur af ástríðu fyrir samfélagið, fyrirtæki og fólk á svæðinu.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550