Í gær voru undirritaðir samningar um sóknaráætlun við átta landshlutasamtök sveitarfélaga til næstu fimm ára í Norræna húsinu. Katrín M. Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri SSNV ásamt nýjum ráðherrum, Eyjólfi Ármannssyni, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Loga Einarssyni, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og Jóhanni Páli Jóhannssyni, umhverfis- orku og loftslagsráðherra, skrifuðu undir samning um nýja Sóknaráætlun Norðurlands vestra 2025-2029. Það er samdóma álit þeirra sem koma að sóknaráætlunum að þær hafi sannað gildi sitt fyrir byggðir landsins en verkefnið byggir á tólf ára sögu.
Markmiðið með sóknaráætlunum er að stuðla að jákvæðri og sjálfbærri byggðaþróun, treysta stoðir menningar, efla atvinnulíf og nýsköpun, styðja við áherslur um umhverfis- og loftslagsmál og auka þannig samkeppnishæfni landshluta og þar með landsins alls. Þá er markmiðið einnig að efla samráð hjá stjórnvöldum og milli landshluta og tryggja gagnsæi við úthlutun opinberra fjármuna.
Framlög ríkisins til samninganna árið 2025 nema samtals 865,7 milljónum króna og framlög sveitarfélaga samtals 93,9 milljónum króna. Alls nema heildarframlög ríkis og sveitarfélaga til sóknaráætlana því um 960 milljónum kr.
Ráðherrar og fulltrúar landshlutasamtaka sveitarfélaga að lokinni undirritun samninga um sóknaráætlanir fyrir tímabilið 2025-2029.
Sóknaráætlanir landshluta eru stefnumótandi áætlanir sem fela í sér stöðumat viðkomandi landshluta, framtíðarsýn, markmið og aðgerðir til að ná þeim markmiðum. Markmiðið er að ráðstöfun fjármuna sem varið er til verkefna í einstökum landshlutum á sviði samfélags-, umhverfis- og byggðamála byggi á áherslum heimafólks.
Eyjólfur Ármannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra: „Sóknaráætlanir landshluta hafa sannað gildi sitt í gegnum tíðina. Tilgangurinn er að stórefla byggðir landsins með virkri þátttöku heimafólks. Mikilvægt er að fólkið sem þekkir best til aðstæðna í sinni heimabyggð taki ákvarðanir um nýtingu fjármuna sem varið er til einstakra landshluta. Einungis þannig tryggjum við framgang sóknaráætlana og eflum byggðaþróun í landinu.“
Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra: „Ég hef kynnst því sjálfur sem sveitarstjórnarmaður hversu skilvirkt og árangursríkt það er að veita peningum til menningar og nýsköpunar í gegnum sóknaráætlanir. Þar sem að nærsamfélagið sem hefur puttann á púlsinum ráðstafar fjármunum í mikilvæg verkefni.“
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Við fögnum því að umhverfis- og loftslagsmál eru nú í fyrsta sinn felld inn í samninga um sóknaráætlanir landshluta. Með því er aukinn þungi settur í málaflokkinn um land allt og um leið sýnt gott fordæmi í umhverfis- og loftslagsmálum sem ein af grunnstoðum aukinnar samkeppnishæfni landshluta. Þá er með þessu ítrekað mikilvægi þessara mála í þeirri vegferð að efla atvinnu- og byggðaþróun um land allt.“
Ný Sóknaráætlun Norðurlands vestra var samþykkt á haustþingi og tók hún gildi í janúar 2025. Með nýrri sóknaráætlun fyrir Norðurland vestra fyrir árin 2025-2029, sjáum við fyrir okkur framtíð þar sem samfélagið okkar getur vaxið, dafnað og byggt á sínum styrkleikum. Sóknaráætlunin okkar er ekki einungis verkfæri fyrir áhersluverkefni svæðisins heldur einnig leiðarljós sem byggir á meginmarkmiðum byggðaáætlunar, landsskipulagsstefnu, menningarstefnu og annarri opinberri stefnumótun.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550