Á 2. haustþingi SSNV sem haldið var á Blönduósi 19. október 2018 var skipuð samgöngu- og innviðanefnd. Skipan nefndarinnar er í samræmi við samþykkt 25. ársþings SSNV. Samkvæmt þeirri samþykkt skyldi hvert aðildarsveitarfélag samtakanna tilnefna einn fulltrúa. Hlutverk nefndarinnar er að vinna að upplýsingaöflum vegna samgönguáætlunar SSNV með starfsmönnum samtakanna. Ítarleg upplýsingaöflun og greining á þáttum er varða samgöngu- og innviðamál er grundvöllur þess að setja megi saman raunhæfar áætlanir um uppbyggingu samgöngumannvirkja og annarra innviða í landshlutanum.
Eftirtaldir aðilar voru skipaðir í samgöngu- og innviðanefnd SSNV:
Aðalmenn: Til vara:
Indriði Þór Einarsson Sveinn Úlfarsson, Skagafirði.
Magnús Magnússon Guðný Hrund Karlsdóttir, Húnaþ. vestra
Alexandra Jóhannesdóttir Halldór G. Ólafsson, Svf. Skagaströnd
Guðmundur Haukur Jakobsson Rannveig Lena Gísladóttir, Blönduós.
Drífa Árnadóttir Eyþór Einarsson, Akrahreppur
Einar K. Jónsson Þorleifur Ingvarsson, Húnavatnshreppur
Dagný Rósa Úlfarsdóttir Magnús Björnsson, Skagabyggð
Framkvæmdastjóri mun starfa með nefndinni og aðrir starfsmenn samtakanna eftir atvikum.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550