Ráðgjafi SSNV á sviði ferðamála með fastan viðverutíma á Blönduósi og Hvammstanga

Frá og með næstu viku hefur Davíð Jóhannsson ráðgjafi SSNV á sviði ferðamála fasta viðverutíma á öðrum stöðum starfssvæðisins og munu það verða síðasti þriðjudagur í mánuði á Hvammstanga og síðasti miðvikudagur í mánuði á Blönduósi.  Fyrstu tímarnir verða sem her segir:

Þriðjudagur 26. Janúar klukkan 10-12 og 13-15 á Skrifstofu SSNV á Hvammstanga
Miðvikudagur 27. Janúar klukkan 10-12 og 13-15 á Bæjarskrifstofunni á Blönduósi

Í framhaldinu verður skoðað hvaða tímar dags henta best.

Fólk er hvatt til þess að nota sér þessa tíma og til að auðvelda skipulagningu að bóka tíma með tölvupósti á david@ssnv.is eða símleiðis í  8422080