Landstólpinn Samfélagsviðurkenning Byggðastofnunar er viðurkenning sem Byggðastofnun veitir árlega á ársfundi sínum. Um er að ræða hvatningarverðlaun til einstaklinga, fyrirtækja, hópa eða verkefna sem vakið hafa athygli á byggðamálum, styrkt samfélög í landsbyggðunum eða stuðlað að framgangi málefna landsbyggðanna, ýmist í heild eða innan tiltekins byggðarlags, s.s. innan nýsköpunar, byggðaþróunar, atvinnuþróunar, sjálfbærni eða menningar.
Hér með er lýst eftir tilnefningum um handhafa Landstólpans 2022. Dómnefnd velur úr þeim tillögum sem berast.
Hafa má í huga hvort viðkomandi einstaklingur, hópur, fyrirtæki eða verkefni hafi:
Ekki er nauðsynlegt að öllum þessum atriðum sé fylgt eftir, heldur séu þau höfð til hliðsjónar. Nauðsynlegt er að rökstuðningur fylgi tilnefningunni.
Viðurkenningunni fylgir listmunur hannaður af íslenskum listamanni.
Tillögur sendist á netföngin: helga@byggdastofnun.is eða andri@byggdastofnun.is
Nánari upplýsingar gefa Helga Harðardóttir eða Andri Þór Árnason, s. 455-5400.
Frestur til að til að koma tillögum til skila rennur út föstudaginn 31. mars 2022
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550