Ratsjáin er ákveðið verkfæri ætlað stjórnendum í ferðaþjónustu og tengdum greinum sem vilja auka nýsköpunarhæfni sína, hraða mikilvægum breytingaferlum og öðlast aukna yfirsýn og getu til að þróa vörur og þjónustu. Íslenski ferðaklasinn leiðir verkefnið í samstarfi við RATA og landshlutasamtökin á landsbyggðinni.
Ratsjáin verður keyrð með blönduðu sniði af rafrænni fræðslu, vinnustofum og verkefnalotum. Allir landshlutar munu eiga kost á þátttöku og mikil tækifæri á að kynnast þvert á greinar og landshluta.
Ljóst er að fyrirtæki í virðiskeðju ferðaþjónustunnar hafa verið í mikilli óvissu og ólgusjó sem vonandi fer að sjá fyrir endann á. Á næstu vikum og mánuðum er lykilatriði að nýta tímann til að efla nýsköpun, vöruþróun og stafræna ferla fyrirtækisins ásamt því að spegla þekkingu og reynslu hjá öðrum fyrirtækjaeigendum.
Ratsjáin mun snerta á helstu áskorunum sem fyrirtækjaeigendur standa frammi fyrir í dag en endanleg dagskrá mun vera unnin í samstarfi við þátttakendur sem geta með kosningu haft áhrif á þá efnisþætti sem teknir verða fyrir. Listi yfir mögulega efnisþætti er að finna inní umsóknarforminu hér.
Meðal efnisþátta sem verða í boði eru:
Umsóknarfrestur er til 31. janúar. Verkefnið er 8 vikur og stendur yfir frá 15. febrúar – 5. apríl. Kynningarfundur fyrir áhugasama verður 25. janúar kl. 13.
Þátttökugjald í Ratsjána er 40.000 kr per fyrirtæki en allt að tveir þátttakendur geta tekið þátt frá hverju fyrirtæki. Allflestir starfsmenntasjóðir styrkja við þátttökugjöld að þessu tagi.
Tengiliður verkefnisins á Norðurlandi vestra er Davíð Jóhannsson ráðgjafi á sviði ferðamála hjá SSNV og veitir hann frekari upplýsingar um verkefnið í tölvupósti david@ssnv.is eða síma 842 2080
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550