Í samræmi við það sem samningur landanna kveður á um er hægt að sækja um styrki til tvennskonar verkefna:
Vakin er athygli á að stjórn NATA leggur sérstaka áherslu á umsóknir sem tengjast sjálfbærri ferðamennsku.
Allir sem starfa að eflingu ferðaþjónustu í samstarfi landanna þriggja geta sótt um styrk að hámarki 100.000 danskar krónur, eða að hámarki 50% þeirra kostnaðarliða sem styrktir eru. Skulu umsóknir fela í sér samstarf milli einstaklinga, stofnana eða fyrirtækja í tveimur af löndunum þremur hið minnsta. Ekki eru veittir styrkir vegna launakostnaðar, ráðgjafar, útgáfu efnis eða vefsíðugerðar.
Sækja má um aðstoð á eftirfarandi sviðum ferðaþjónustu.
Við mat á umsóknum verður tekið tillit til eftirfarandi þátta:
Eitt af markmiðum samstarfssamnings um ferðamál á milli Íslands, Grænlands og Færeyja er að auka samskipti og fjölga heimsóknum á milli landanna þriggja. Hér með eru auglýstir ferðastyrkir til þeirra sem vinna að samstarfsverkefnum sem varða tvö af löndunum þremur hið minnsta. Styrkjunum er einvörðungu ætlað að standa straum af ferðakostnaði, ekki gistingu eða uppihaldi. Hámarksstyrkur á hvern einstakling er 1.000 danskar krónur vegna ferðalaga milli Íslands og Grænlands annars vegar og Íslands og Færeyja hins vegar.
Sækja má um styrk til kynnis- og námsferða eftirtaldra:
Við mat á umsóknum verður tekið tillit til eftirfarandi atriða:
Allar umsóknir þurfa að berast með rafrænum hætti á þar til gerðum umsóknarblöðum sem finna má á vef NATA. Vefurinn og umsóknarformin eru bæði á dönsku og ensku.
Lokafrestur til að skila umsókn er á miðnætti (GMT) 20. febrúar 2018. Umsóknir eða fylgigögn sem berast eftir þann tíma verða ekki tekin gild. Niðurstaða stjórnar NATA um úthlutun mun liggja fyrir 10. apríl 2018 og munu umsækjendur fá svar þann dag. Athugið að verkefni með áætluð verklok fyrir 10. apríl eru ekki styrkhæf og sama á við um ferðir sem lýkur fyrir þann tíma.
Um er að ræða fyrri úthlutun af tveimur á árinu 2018. Áætlað er að umsóknarfrestur vegna seinni úthlutunar 2018 verði á tímabilinu ágúst-september 2018 en það verður auglýst sérstaklega síðar.
Nánari upplýsingar gefur starfsmaður NATA, Birita Johansen, sími 00 298 30 9900 eða í gegnum netfangið nata@industry.fo
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550