Markmið sjóðsins er að gefa háskólum, rannsóknarstofnunum og fyrirtækjum tækifæri til að ráða námsmenn í grunnnámi og námi á meistarastigi við háskóla til sumarvinnu að rannsókna- og þróunarverkefnum. Umsóknarfrestur er til 7. febrúar 2022 kl 15.00.
Af hverju?
Fyrir hverja?
Styrkir eru veittir til rannsóknar- og þróunarverkefna sem líkleg þykja til að stuðla að nýsköpun og auknum tengslum háskóla, stofnana og fyrirtækja. Umsóknir um styrki er m.a. metnar með hliðsjón af möguleikum til hagnýtingar í atvinnulífi og nýnæmi fyrir þekkingu í viðkomandi fræðigrein. Verkefnin skulu leyst af hendi með sjálfstæðri og faglegri vinnu námsmanns undir leiðsögn umsjónarmanns frá háskóla, stofnun eða fyrirtæki.
Styrkir eru ekki veittir til lokaverkefna námsmanna. Sótt er um í gegnum rafrænt umsóknarkerfi Rannís. Úthlutun mun liggja fyrir mánaðarmótin mars/apríl 2022.
Atvinnuráðgjafar SSNV veita aðstoð við gerð umsókna, hægt er að bóka tíma hér. Nánari upplýsingar, reglur og leiðbeiningar er að finna á síðu Nýsköpunarsjóðs námsmanna. Einnig er hægt að senda fyrirspurn á nsn(hja)rannis.is.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550