Barnameningarsjóður Íslands er fyrir listafólk, félagasamtök og aðra lögaðila sem sinna menningarstarfi fyrir börn og ungmenni í samræmi við opinbera menningarstefnu. Til barnamenningar teljast verkefni á sviði lista og menningar sem unnin eru með virkri þátttöku barna og/eða fyrir börn.
Hlutverk Barnamenningarsjóðs er að fjármagna og styðja við fjölbreytta starfsemi á sviði barnamenningar með áherslu á sköpun, listir og virka þátttöku barna í menningarlífi. Í starfi sjóðsins er m.a. horft til áherslu menningarstefnu um samstarf stofnana, skóla, félagasamtaka og einstaklinga, ásamt því markmiði að jafna aðgengi barna og ungmenna að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag.
Styrkt eru fjölbreytt verkefni og starfsemi á sviði barnamenningar með áherslu á sköpun, listir og virka þátttöku barna. Verkefni sem auk þess stuðla að lýðræðislegri virkni barna í samfélaginu eða taka að öðru leyti mið af inntaki Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna hafa sérstakt vægi. Einnig er horft til verkefna sem efnt er til í samstarfi ólíkra aðila.
Umsóknarfrestur er 4. apríl 2025 til kl. 15:00.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550