SSNV og Eyþing hafa í sameiningu tekið í notkun yfirgripsmikinn gagnagrunn um menningartengda þjónustu á Norðurlandi. Verkefnið hefur hlotið nafnið Menningarbrunnur en það hlaut styrk úr Sóknaráætlunum Norðurlands eystra og vestra sem áhersluverkefni.
Menningarbrunnur - Gagnagrunnur um menningartengda þjónustu á Norðurlandi mun verða aðgengilegur á heimasíðum Eyþings, SSNV og fleiri aðila. Skráning í grunninn er aðilum að kostnaðarlausu en skráning og viðhald upplýsinga verður í höndum Eyþings og SSNV. Í gagnagrunninum verður að finna upplýsingar um:
Frekari upplýsingar um gagnagrunninn veita Ingibergur Guðmundsson verkefnastjóri hjá SSNV, ingibergur@ssnv.is, og Vigdís Rún Jónsdóttir verkefnastjóri menningarmála hjá Eyþingi, vigdis@eything.is.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550