Nýr framkvæmdastjóri SSNV

Björn Líndal er borinn og barnfæddur Húnvetningur, fæddur á Hvammstanga og uppalinn á Laugarbakka í Miðfirði. Björn hefur víðtæka reynslu af rekstri, fjármálum og uppbyggingu atvinnuverkefna. Lengst af starfaði hann hjá Sparisjóði Húnaþings og Stranda, síðar Landsbankanum en síðustu ár sem sjálfstætt starfandi við bókhald, fjármálastjórn og fjármálaráðgjöf. Hann er viðskiptalögfræðingur frá Bifröst og stundar meistaranám í Skattarétti og reikningsskilum við Háskóla Íslands.

Björn hefur gegnt fjölda trúnaðarstarfa, bæði á opinberum vettvangi og í stjórnum félaga og fyrirtækja. Hann er kvæntur Guðrúnu Elínu Benónýsdóttur hjúkrunarfræðingi og eiga þau þrjú uppkomin börn.