Markaðsstofur landshlutanna setja upp stefnumótið MANNAMÓT í Reykjavík 19. janúar 2017 frá kl. 12.00 - 17.00 í flugskýli flugfélagsins Ernis á Reykjavíkurflugvelli.
UM MANNAMÓT: Mannamót markaðsstofanna er kynningarvettvangur ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni og tækifæri til að koma á fundum fagaðila í greininni. Tilgangurinn er að kynna landsbyggðarfyrirtæki fyrir ferðaþjónustuaðilum sem staðsettir eru á Höfuðborgarsvæðinu. Ísland hefur mikið upp á að bjóða og Mannamót hjálpa til við að mynda tengsl innan ferðaþjónustunnar. Gestum á Mannamótum gefst kostur á kynna sér það sem mismundi landshlutar eru að bjóða uppá.
FYRIR HVERJA? MANNAMÓT er kjörinn vettvangur fyrir aðila í ferðaþjónustu að koma og kynna sér þá fjölbreytni í þjónustu sem er í boði á landsbyggðinni. Því er Mannamót sérstaklega áhugaverður vettvangur fyrir m.a.: • Starfsfólk ferðaskrifstofa og ferðaskipuleggjenda • Starfsfólk upplýsinga- og bókunarmiðstöðva • Leiðsögumenn • Nemendur í leiðsögunámi og ferðamálafræðum ásamt kennurum í ferðamálagreinum • Starfsfólk í þjónustuverum flugfélaga • Sölu- og kynningarfólk flugfélaga • Starfsfólk í mótttökum hótela og gistihúsa • Fjölmiðlar
FYRIR SÝNENDUR: Einungis samstarfsfyrirtæki markaðsstofanna geta tekið þátt sem sýnendur í Mannamóti 2017. Skráningu lýkur 12. janúar 2017. Upplýsingar og skráning fyrir sýnendur er inn á www.markadsstofur.is
Skráning gesta fer fram hér: http://www.markadsstofur.is/is/skraninggesta
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550