Málþing um syrkjaumhverfi listasafna

Fyrir hönd landshlutasamtaka mun Sigursteinn Sigurðsson menningarfulltrúi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi vera með erindi á málþingi um styrkjaumhverfi listasafna sem  Samtök listasafna á Íslandi standa að. Lilja Dögg Alfreðsdóttir ráðherra Menningar- og viðskiptaráðuneytisins opnar þingið.

Landshlutasamtök halda utan um uppbyggingarsjóði um land allt, en þeir hafa verið partur af styrkja- og starfsumhverfi íslenskra listasafna og listafólks, í takt við áherslur Sóknaráætlanna í hverjum landshluta fyrir sig. Í öllum landshlutum fer nú fram vinna við mótun nýrra Sóknaráætlana sem munu gilda 2025-2029.

Markmið málþingsins er að draga fram mynd af þeim innlendu samkeppnissjóðum sem söfnin og þeirra helstu samstarfsaðilar geta sótt í og skoða með hliðsjón af starfsumhverfinu, helstu skyldum safna og sérstæði einstakra safna – en söfnin eru jafn ólík og þau eru mörg. Skoðað verður hvort og hvernig markmið safnanna fara saman eða skarast á við markmið þeirra sjóða sem sótt er í og rýnt í þá grunnþætti sem oft reynist erfitt að fjármagna.

Málþingið er öllum opið, nánari upplýsingar má finna á facebook viðburði málþingsins.