Það skiptir okkur engu máli hvort eða hvaða sjónvarpssería kveikti áhuga þinn á lögfræði. Það eina sem við viljum vera viss um er að við fáum í hópinn frábæran lögfræðing sem langar að verða hluti af öflugri liðsheild í nýju ráðuneyti. Við leitum að manneskju sem býr yfir þeim eiginleikum að vera hvoru tveggja í senn; hugmyndarík og nákvæm - lausnamiðuð en um leið föst fyrir. Nokkurs konar stálhnefi í silkihanska.
Hér munu gefast ótal tækifæri til að móta og skapa framtíðina í ráðuneyti sem ætlar sér að vera leiðandi í verkefnamiðuðu og árangursdrifnu vinnulagi.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins hafa gert.
Hlutverk háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins er að leiða saman það afl sem býr í háskólastarfi, vísindum, nýsköpun, iðnaði, fjarskiptum og upplýsingatækni og stuðla þannig að því að hugvitið verði stærsta útflutningsgrein þjóðarinnar.
Um er að ræða fullt starf lögfræðings á skrifstofu framkvæmdar og eftirfylgni. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar á lausum störfum.
Nánari upplýsingar veitir Ari Sigurðsson, skrifstofustjóri skrifstofu framkvæmdar og eftirfylgni, ari.sigurdsson@hvin.is.
Með umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
Athygli er vakin á því að samkvæmt 7. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 er ráðuneytinu¿skylt að veita upplýsingar um nöfn og starfsheiti umsækjenda um starf þegar umsóknarfrestur er liðinn verði eftir því leitað.
Ráðuneytið leggur áherslu á jafnrétti og hvetur öll áhugasöm til að sækja um starfið.
Ráðuneytið er jákvætt fyrir störfum óháð staðsetningu.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 26.09.2022
Ari Sigurðsson - ari.sigurdsson@hvin.is
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550