Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Lóu - nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina. Lóa eru nýsköpunarstyrkir sem hafa það hlutverk að styðja við eflingu byggða og landshluta með nýskapandi verkefnum. Styrkjunum er aðeins úthlutað til verkefna utan höfuðborgarsvæðisins í þeim tilgangi að styðja við atvinnulíf og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni.
Að þessu sinni er sérstök áhersla lögð á verkefni sem fela í sér hagnýtingu stafrænna lausna, þróun og nýtingu tæknilausna í heilbrigðismálum og verkefni sem stuðla að sjálfbærri nýtingu auðlinda eða afurða á nýskapandi hátt. Sjóðurinn er ætlaður verkefnum sem komin eru af byrjunarstigi og er heildarfjárhæð hans í ár 100 milljónir króna.
Umsóknarfrestur er til og með 30. mars 2025. Umsóknareyðublað er að finna á minarsidur.hvin.is. Nánari upplýsingar um Lóu styrki má nálgast á vef ráðuneytisins.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550