Jólatónleikar Lóuþræla 2015

Karlakórinn Lóuþrælar heldur jólatónleika í

Barnaskólanum á Borðeyri,

þriðjudaginn 15. desember, kl. 20:30

 

og í Félagsheimilinu Hvammstanga,

miðvikudaginn 16. desember, kl. 20:30

 

Stjórnandi kórsins er Daníel Geir Sigurðsson

og undirleikari Elinborg Sigurgeirsdóttir.

Einsöngvarar eru Friðrik Már Sigurðsson og

Guðmundur Þorbergsson

 

Kynnir er Daníel Geir Sigurðsson.

Hugvekju flytur Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir.

Á söngskránni eru jóla- og aðventulög, íslensk og erlend.

Enginn aðgangseyrir.

 

Á tónleikunum á Hvammstanga munu einnig syngja

nemendur 3. og 4. bekkjar Grunnskóla Húnaþings vestra

við undirleik Aðalsteins Grétars Guðmundssonar.

 

Heitt súkkulaði og smákökur að loknum tónleikum.

 

Tónleikarnir eru í boði Landsbankans á Hvammstanga

og styrktir af Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra