Íbúakönnun landshlutanna er farin af stað á öllu landinu. Sem fyrr er lögð áhersla á að spyrja þátttakendur aðallega um mat þeirra á búsetuskilyrðum þeirra, almenna velferð, stöðu þeirra á vinnumarkaði og hver framtíðaráform þeirra séu um búsetu. Gögn þessarar könnunar hafa nú þegar gefið þeim sem vinna að byggðaþróun á sveitarstjórnarstiginu mikilvægar upplýsingar um raunverulega stöðu í hinum ýmsu byggðum um land allt eins og sjá má t.d. á heimasíðu Byggðastofnunar (Smellið hér).
Íbúakönnun landshlutanna er samstarfsverkefni landshlutasamtaka á landsbyggðinni og Byggðastofnunar og hefur verið í gangi síðan árið 2004. Hún hefur síðan þá verið framkvæmd á þriggja ára fresti og er ætlunin að halda því áfram til þess að afla gagna um stöðu byggðanna á landinu öllu í þeirri viðleitni að bæta lífs- og búsetuskilyrði hérlendis. Allir íbúar eru því boðnir velkomnir í þessa könnun.
Taka má þátt í könnuninni með því að fara inn á þessa netslóð: https://www.surveymonkey.com/r/ibuakonnun2023_bodid
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550