Byggðastofnun heldur úti gagnagrunni með húsnæði í boði á landsbyggðinni fyrir störf án staðsetningar. Gagnagrunnurinn er mikið notaður af einstaklingum og stofnunum sem hyggja á að leigja húsnæði fyrir sín störf. Gagnagrunnurinn er aðgengilegur hér.
SSNV hefur sent inn nokkra möguleika á aðstöðu í landshlutanum en við vekjum athygli á því að þeir aðilar sem hafa húsnæði í boði geta sent inn ábendingar til okkar, ssnv@ssnv.is eða beint á Byggðastofnun á Þorkel Stefánsson, thorkell@byggdastofnun.is.
Gott framboð af húsnæði af þessari gerð er forsenda þess að verkefnið um Störf án staðsetningar gangi vel og leiði til fjölgunar starfa á landsbyggðinni.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550