Húnabyggð hlýtur Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu fyrir Þrístapa

Svæðið í kringum Þrístapa er vel heppnað og snyrtilegt.
Svæðið í kringum Þrístapa er vel heppnað og snyrtilegt.

Húnabyggð hlaut Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu árið 2024 fyrir uppbyggingu við Þrístapa. Verkefnið var á höndum Húnavatnshrepps áður en sveitarfélögin sameinuðust.

 

Um er að ræða áhugaverðan menningarsögulegan ferðamannastað, vestast í Vatndalshólum norðan þjóðvegarins. Við veginn er að finna síðasta aftökustaðinn á Íslandi. Aftakan fór fram þann 12. janúar 1830 þegar þau Agnes Magnúsdóttir og Friðrik Sigurðsson voru hálshöggvin. Sagan hefur verið vinsælt viðfangsefni, bæði í skáldsögum og kvikmynd.

Þrístapar hafa verið gerðir aðgengilegir og öruggir fyrir ferðamenn til að upplifa og fræðast um söguna. Uppbygging hefur staðið yfir um nokkurt skeið en þarna hefur verið komið fyrir göngustíg, upplýsinga- og fræðsluskiltum, bílastæði og salerni. Minningarsteinn er á aftökustaðnum en höggstokkurinn og öxin eru varðveitt á Þjóðminjasafni Íslands.

 

SSNV óskar Húnabyggð til hamingju með viðurkenninguna, en við hvetjum öll til þess að koma við hjá Þrístöpum og skoða uppbygginguna sem þar hefur orðið.