SSNV, SSNE, NÍN, RATA og Eimur stóðu saman að umsókn í Lóuna, nýsköpunarsjóð landsbyggðanna, til að byggja upp verkefnið Hringrás Nýsköpunnar á Norðurlandi.
Verkefnið hlaut styrk upp á sjö milljónir en verkefnið felst í því að á hverju ári verði lausnamót, frumkvöðlasmiðja, viðskiptahraðall og fjárfestahátíð. Verkefnið gengur út á að sama hvenær árs þú færð hugmynd þá sé stoðumhverfið tilbúið með verkfæri til að þróa hugmyndina áfram og alltaf sé í boði frekari framþróun á hugmyndinni.
Styrkurinn verður nýttur til að keyra viðskiptahraðal í vetur og í framhaldi af því verður haldin fjárfestahátíð. SSNV fagnar styrknum og hlakkar til að vinna áfram með teyminu sem kemur að verkefninu.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550