Hlaðvarpið Fólkið á Norðurlandi vestra - Sigrún Helga Indriðadóttir

Nýr þáttur af hlaðvarpinu Fólkið á Norðurlandi vestra er kominn út. Viðmælandi þáttarins að þessu sinni er Sigrún Helga Indriðadóttir. 

Skagfirðingurinn Sigrún býr á bænum Stórhóli í Lýtingsstaðahreppi. Hún er bóndi, listamaður og smáframleiðandi. Á Stórhóli er að finna Rúnalist Gallerí, en það er vinnustofa og lítil búð þar sem selt er handverk og afurðir búsins. 

Árið 2019 var farið af stað með hlaðvarpsþættina Fólkið á Norðurlandi vestra. Framleiddir voru um 30 þættir sem vöktu mikla athygli og fengu góða hlustun. Við endurvekjum nú hlaðvarpið og stefnum á að birta þætti reglulega með viðtölum við áhugaverða einstaklinga á Norðurlandi vestra sem eru að sýsla við áhugaverða hluti. 

Þættirnir eru aðgengilegir á podbean, inn á helstu hlaðvarpsveitum og á heimasíðu SSNV.