Í kjölfar 2. haustþings SSNV sem haldið var á Blönduósi 19. október stóðu samtökin fyrir dagskrá fyrir sveitarstjórnarmenn undir yfirskriftinni Hittumst og fræðumst. Í ljósi þess að 67% sveitarstjórnarmanna eru nýir í sveitarstjórnum á starfssvæði samtakanna var ákveðið að bjóða upp á dagskrá sem samanstóð af erindum þar sem farið var yfir sameignleg viðfangsefni sveitarfélaganna á Norðurlandi vestra. Þess má geta að meðaltal nýliðunar í sveitarstjórnum á landinu öllu er 58,4%.
Það er mál manna að erindin hafi verið upplýsandi og fræðandi fyrir sveitarstjórnarmenn, nýja sem eldri, enda taka viðfangsefni sveitarstjórna sífelldum breytingum.
Á dagskrá voru eftirtalin erindi:
Byggðaáætlun 2018-2024, Snorri Björn Sigurðsson, Byggðastofnun.
Rekstur almenningssamgangna, Páll Brynjarsson, framkvæmdastjóri SSV.
Starfsemi Norðurár b/s, urðunarstaðar í Stekkjarvík, Magnús B. Jónsson, formaður stjórnar.
Málefni fatlaðs fólks á Norðurlandi vestra, Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, félagsmálastjóri Sveitarfélagsins Skagafjarðar.
Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra, Sigurjón Þórðarson, framkvæmdastjóri.
Áhersluverkefni Sóknaráætlunar Norðurlands vestra, Unnur Valborg Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri SSNV.
Dagskránni var streymt á facebook síðu samtakanna og eru erindin aðgengileg þar. Stefna samtakanna er að streyma beint frá öllum viðburðum sem þau standa fyrir.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550