Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra auglýsir lausa til umsóknar stöðu heilbrigðisfulltrúa með starfssvæði á Norðurlandi vestra. Svæðið nær frá vestanverðum Hrútafirði til Ólafsfjarðar. Skrifstofa er staðsett á Sauðárkróki.
Heilbrigðisfulltrúar starfa í umboði heilbrigðisnefnda og hafa umsjón með leyfisveitingum fyrirtækja og eftirlit með hollustuháttum, matvælum, umhverfisgæðum og mengandi starfsemi í samræmi við eftirlitsáætlun hverju sinni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Reglubundið eftirlit með fyrirtækjum og stofnunum í samræmi við þau lög sem um starfsemina gildir
- Útgáfa starfsleyfa, vinna starfsleyfisskilyrði, skráning, umsagnir og skýrslugerð
- Fagleg ráðgjöf og umsagnir
- Móttaka ábendinga og kvartana
- Hönnun verkferla og eftirlitsáætlana
- Að veita faglega ráðgjöf og upplýsingamiðlun til fyrirtækja, stofnana og almennings
- Að sinna öðrum verkefnum sem eftirlitinu ber skv. starfslýsingu og að beiðni yfirmanns
Menntunar- og hæfniskröfur
- Krafa er um háskólamenntun á sviði heilbrigiðsvísinda, raunvísinda s.s. matvælafræði, líffræði, dýralækningar, umhverfisfræði eða sambærileg menntun.
- Viðkomandi þarf að hafa eða mun þurfa að afla sér réttinda til að starfa sem heilbrigðisfulltrúi skv. reglugerð nr 571/2002 um menntun og skyldur heilbrigðisfulltrúa.
- Viðkomandi þarf að hafa gott vald á íslensku, bæði rituðu og töluðu máli og hafa framúrskarandi samskiptahæfileika.
- Bílpróf er skilyrði.
Nánar um starfið hér.