Tilgangur sjóðsins er að styrkja fyrstu skrefin í rannsóknum á mögulegum rennslisvirkjunum á Norðurlandi vestra sem eru undir 10 MW að stærð. Miðað er við fyrirliggjandi yfirlit á mögulegum rennslisvirkjunum sem upp eru taldir í skýrslu Mannvits 2018: Frumúttekt á smávirkjanakostum á Norðurlandi vestra. Þó er heimilt að bæta við fleiri virkjunarkostum með samþykki SSNV.
Sjóðurinn veitir styrki til annars vegar: Skref 1: Frummat smávirkjana og hins vegar: Skref 2: Mat á virkjanlegu rennsli, frummati hönnunar og byggingarkostnaðar.
Öll gögn varðandi umsóknarferlið og skýrsla Mannvits er að finna á heimasíðu SSNV: www.ssnv.is
Að þessu sinni er auglýst eftir umsóknum í Skref 1: Frummat smávirkjana. Umsóknarfrestur er til og með 5. nóvember 2018. Verkefninu verður lokið fyrir 31. maí 2019. Hámarksfjöldi verkefna sem styrkt verða er 8.
Auglýst verður eftir umsóknum í Skref 2 í júní 2019.
Samið hefur verið við Verkfræðistofuna Mannvit um úttekt á þeim virkjunarkostum sem styrktir verða og sér SSNV um samningsgerð við fyrirtækið.
Mótframlag umsækjanda er 100.000 kr. en SSNV greiðir annan kostnað við úttektina. Umsóknir skulu sendar á netfangið: ssnv@ssnv.is. Nánari upplýsingar veitir Ingibergur Guðmundsson, ingibergur@ssnv.is, s. 892 3080.
Sjá nánar hér.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550