Tilgangur smávirkjanasjóðs Norðurlands vestra er að styrkja fyrstu skrefin í rannsóknum á mögulegum rennslisvirkjunum undir 10 MW að stærð á Norðurlandi vestra.
Sjóðurinn veitir styrki til:
Skref 1: Frummat smávirkjana.
Skref 2: Mat á virkjanlegu rennsli, frummat hönnunar og byggingarkostnaðar.
Að þessu sinni er auglýst eftir umsóknum í Skref 1: Frummat smávirkjana. Umsóknarfrestur er til og með 2. júní 2020.
Öll gögn varðandi umsóknarferlið er að finna á heimasíðu SSNV.
Umsóknir skulu sendar á netfangið: ssnv@ssnv.is.
Nánari upplýsingar veitir Ingibergur Guðmundsson, ingibergur@ssnv.is, s. 892 3080.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550